|
Vilt þú bæta rekstur húsfélagsins hjá þér? |
|
Er til rekstraráætlun? Vantar ársreikning?
|
|
Vill engin taka við af þér? Vantar óháðan aðila? |
| Velkomin á blokkir.is |
| Ráðgjöf - Yfirsýn - Áætlanir |
|
Í flestum húsfélögum er starfandi virk stjórn, þar sem formaður, gjaldkeri og aðrir meðstjórnendur funda með reglulegum hætti. Hversu virkir aðrir félagsmenn eru ræðst oft á tíðum af stærð húsfélaga og áhuga eigenda á að sinna eignum sínum. Það hvernig stjórnir húsfélaga koma upplýsingum á framfæri til félagsmanna skiptir miklu máli og mikilvægt að rétt sé að öllu staðið, til dæmis:
Húsfélagaþjónustan BLOKKIR.IS er ekki bara kjörin leið fyrir stjórnir húsfélga til að tryggja góða yfirsýn yfir fjármál og rekstur, heldur líka leið til að fá ráðgjöf frá óháðun aðila, skýra yfirsýn og áætlanir til að kynna félgsmönnum.
Pantaðu tíma í síma 823-7079 fyrir húsfélagið þitt.
Um aðalfund samkvæmt lögum nr. 26/1994
Aðalfundur húsfélags skal haldinn ár hvert fyrir lok aprílmánaðar. Til aðalfundar skal stjórnin boða skriflega og með sannanlegum hætti með minnst 8 og mest 20 daga fyrirvara. Í fundarboði skal greina fundartíma, fundarstað og dagskrá. Þá skal geta þeirra mála sem ræða á og meginefni þeirra tillagna sem leggja á fyrir fundinn. Vilji eigandi fá mál tekið fyrir og til atkvæðagreiðslu á aðalfundi skal hann greina stjórn frá því skriflega með þeim fyrirvara að unnt sé að geta þeirra í fundarboði.
Um ákvarðanatöku samkvæmt lögum nr. 26/1994
36. gr. Ráðstöfunarréttur eigenda yfir sameign. 37. gr. Ráðstafanir til að forðast tjón. 38. gr. Nauðsynlegt viðhald. Athafnaleysi húsfélags. 39. gr. Meginreglur um töku ákvarðana. 40. gr. Úrræði eiganda sé hann ekki hafður með í ráðum. 41. gr. Reglur um töku ákvarðana. 42. gr. Kröfur um fundarsókn. 65. gr. Vanhæfi við ákvarðanatöku. 69. gr. Skyldur og verkefni stjórnar. Framkvæmdastjóri. Vanhæfi. 70. gr. Nánar um verk- og valdsvið stjórnar.
Um almennan fund samkvæmt lögum nr. 26/1994
Á öðrum húsfundum en aðalfundi skal fjalla um þau mál sem tiltekin eru í fundarboði. Almennir fundir eru haldnir:
Stjórn húsfélagsins á að boða til almenns fundar með minnst 4 og mest 20 daga fyrirvara.
Félagsmaður getur skotið ákvörðunum stjórnar sem honum við koma til húsfundar og á félagsmaður rétt á að fá ákveðin mál tekin fyrir til umræðu á húsfundi en ekki til atkvæðagreiðslu nema þess hafi verið getið í fundarboði. Séu allir félagsmenn hins vegar mættir getur fundurinn samþykkt afbrigði og tekið mál til umfjöllunar og atkvæðagreiðslu þótt þeirra hafi ekki verið getið í fundarboði.
|